Samningar 100 þúsund manns í hættu 5. nóvember 2005 03:30
Fjögurra manna nefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins reynir nú að ná saman um viðbrögð við breyttum forsendum kjarasamninga sem tóku gildi í ársbyrjun 2004. Greinir nefndarmenn á um viðbrögð. ASÍ hefur lagt til að laun verði hækkuð í samræmi við hækkun verðbólgu umfram það sem gert var ráð fyrir, eða tveggja prósenta hækkun, en SA hafnar því alfarið. Forsendunefndinni ber að skila niðurstöðum fyrir 15. nóvember. Ef nefndin kemst ekki að niðurstöðu um viðbrögð verða samningar sendir til stéttarfélaga, sem taka munu ákvörðun um hvort segja eigi þeim upp og hvort boða eigi til verkfalla. Alls er um að ræða samninga nær hundrað þúsund manns, þótt stöðugildin séu ekki jafnmörg en af þeim eru 65 þúsund manns innan ASÍ, tíu þúsund manns utan ASÍ á SA samningum og tuttugu þúsund ríkisstarfsmenn, að sögn Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA. "Samningar sem snúa að nær 100 þúsund manns yrðu í uppnámi," segir Ari. "Uppsögn samninga hefðu þau áhrif á þetta fólk að það fengi ekki samningsbundnar hækkanir um áramótin. Samningar yrðu lausir og það yrði háð viðræðum og ákvörðunum félaganna til dæmis um verkfallsboðanir hvað úr yrði," segir hann. Ari telur að uppsögn samninga hefði í för með sér mjög erfiða stöðu því forsendur í atvinnulífinu hafi breyst til hins verra frá síðustu samningum. "Ef atvinnulífið væri að ganga til samninga í dag væri það ekki tilbúið að taka á sig eins miklar kostnaðarhækkanir og það gerði í síðustu samningum. Samningarnir hlytu því að verða mjög erfiðir ef til þeirra kæmi," segir Ari. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir að sambandið sé að undirbúa sig fyrir uppsögn samninga. "Ef samningar eiga að halda þarf að koma til kúvending í stefnu ríkisstjórnar og atvinnurekenda," segir Kristján.
Innlent Mest lesið Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Þúsund íslensk ungmenni taka yfir Krít Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Fleiri fréttir Þúsund íslensk ungmenni taka yfir Krít Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent