Innlent

Aukum valfrelsi borgarbúa

Gísli Marteinn Baldursson: Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að hún hleypi að nýrri kynslóð, nýjum hugmyndum og nýjum áherslum varðandi það hvernig best sé að stjórna borginni. Borgin hefur að mínu mati setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafa tekið til kostanna og nútímavæðst.
Gísli Marteinn Baldursson: Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að hún hleypi að nýrri kynslóð, nýjum hugmyndum og nýjum áherslum varðandi það hvernig best sé að stjórna borginni. Borgin hefur að mínu mati setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafa tekið til kostanna og nútímavæðst.

Gísli Marteinn Baldursson býður sig fram til forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurborg. Hann hefur lagt áherslu á framtíðina, nýjar hugmyndir og nýtt fólk í aðdraganda prófkjörsins sem hefst í dag. Hann svarar því fyrst hvers vegna menn ættu að velja hann í efsta sæti framboðslistann.

"Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að hún hleypi að nýrri kynslóð, nýjum hugmyndum og nýjum áherslum varðandi það hvernig best sé að stjórna borginni. Borgin hefur að mínu mati setið eftir á meðan viðskiptalífið og ríkið hafa tekið til kostanna og nútímavæðst. Drifkraftur og hreyfiafl þessara breytinga hefur verið ný kynslóð fólks með nýjar hugmyndir og ég held að það sé nauðsynlegt fyrir borgina og Sjálfstæðisflokkinn að hleypa því fólki og þeim hugmyndum að."

Heldur hallar á þig í könnunum við upphaf prófkjörsins í dag. Hvernig metur þú stöðu þína?

"Mér líst vel á. Það kann jafnan góðri lukku að stýra að vera á siglingu, vera á uppleið eins og kannanir sýna. Við höfum trú á því að við náum fleiri atkvæðum en Vilhjálmur einfaldlega vegna þess að menn skynja og skilja betur þörfina fyrir eitthvað nýtt. Vilhjálmur hefur verið lengi í borgarmálunum. Hann hefur mikla reynslu af borgarmálum og pólitík. Það ber að virða. En sífellt fleiri eru að átta sig á því að kosningarnar snúast ekki um fortíðina heldur framtíðina. Ég býð mig fram á þeim forsendum að borgin þurfi nýja og skýra framtíðarsýn og að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi mann sem getur leitt flokkinn og borgina gegn um nauðsynlegar breytingar."

Sjálfstæðisflokkurinn í höfuðborginni kynnti snemmsumars skipulagshugmyndir um eyjabyggð. Styður þú ekki þær hugmyndir?

"Ég hef lýst því yfir árum saman að ég vilji byggja í Vatnsmýrinni. Það hefur alltaf verið mín stefna og verið öllum ljóst þegar verið var að vinna þessar hugmyndir um eyjabyggðina. Ég barðist fyrir því í okkar hópi en fékk ekki mikinn hljómgrunn. En margt er ágætt í þessum eyjabyggðarhugmyndum. Þegar ég er spurður um mínar áherslur og hvað ég mundi gera sem oddviti Sjálfstæðismanna mundi ekki byggja úti í Viðey. Ekki heldur úti í Engey. Ég tek undir þau meginsjónarmið að það beri að byggja vestar í borginni. Við eigum að byggja í Vatnsmýrinni og þar með verður ekki þörf á að byggja í Engey sem mun kosta tugi milljarða króna áður en við getum tekið fystu skóflustunguna. Þá er betra að byggja á landi sem til er í Vatnsmýrinni og Geldinganesinu. Og finna flugvellinum annan stað í Reykjavík eða í grennd við höfuðborgarsvæðið sem við getum auðveldlega gert í sátt við alla landsmenn."

Hvert er brýnasta viðfangsefnið og það fyrsta sem þú mundir ráðast í ef þú kæmist í borgarstjórastólinn?

"Ég vil hvorki að prófkjörið nú né kosningarnar í vor snúist um fortíðina. Við eigum að vinna kosningarnar í vor út á hugmyndir okkar um framtíðina en ekki út á vafasama fortíð R-listans. Þegar við komumst að í ráðhúsinum vil ég að þegar í stað verði farið að byggja þessa borg eins og íbúarnir sjálfir vilja. Það þýðir að við þurfum að bjóða upp á nægilegan fjölda lóða til þess að íbúar þurfi ekki að gerast flóttamenn í nágrannasveitarfélögum. Við þurfum að leysa umferðarhnúta. Koma almenningssamgöngum og samgöngum sem borgarbúar hafa valið sér, sem er einkabíllinn, í gott horf. Við þurfum að koma skólamálum og málefnum aldraðra í forgang. Við þurfum að hafa val. Örva einkaframtakið með því að láta sama fjármagn fylgja nemendum hvort sem þeir fara í borgarrekinn skóla eða sjálfstæðan skóla. Þannig fáum við meiri sveigjanleika, fjölbreytni og samkeppni án þess að búa til tvöfalt kerfi."

Hverjum gætir þú hugsað þér að starfa með í meirihluta ef svo færi að Sjálfstæðisflokkurinn næði ekki meirihluta í borgarstjórnarkosningunum?

"Ég hef fulla trú á að við náum meirihluta. En í því sambandi gæti ég unnið með hverjum sem er sem reiðubúinn er til þess að samþykkja þá framtíðarsýn mína að Reykjavík verði byggð upp sem fjölskylduborg þar sem óskir og þarfir borgarbúa eru í fyrsta sæti. Þar sem okkur borgarbúum er þjónað og hjálpað að lifa lífinu eins og við kjósum sjálf að lifa því, en ekki á þann hátt sem borgaryfirvöld vilja að við lifum."

Er prófkjör of kostnaðarsöm leið að lýðræðinu og vali á fulltrúum?

"Þetta er feykileg vinna. En um leið og þetta eru meiri annir en ég hef áður kynnst er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Þetta er hins vegar dýrt. Við höfum reynt að halda kostnaði í lágmarki en heilsíður í blöðum kosta býsna mikið. Við erum svo heppin að njóta framlags fólks sem leggur sig fram kauplaust. Og fyrir það er ég afar þakklátur," segir Gísli Marteinn Baldursson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×