Launahækkanir frá áramótum gufa upp 2. nóvember 2005 06:00 Ólafur Darri Andrason hagfræðingur Alþýðusambands Íslands.
Laun hafa hækkað um rúm þrjú prósent að meðaltali frá áramótum en kaupmátturinn hefur staðið í stað. Launahækkanir hafa étist upp af verðbólgunni sem hefur haldið í við launavísitöluna frá áramótum. Ef horft er tvö ár aftur í tímann er hið sama upp á teningnum. Þrátt fyrir 12 prósenta launahækkanir að meðaltali er kaupmáttaraukningin á sama tíma aðeins fjögur prósent. Verðbólga síðustu tveggja ára er rúm átta prósent. Á síðustu tólf mánuðum hafa laun hækkað um sjö prósent að meðaltali en kaupmáttaraukningin er einungis tvö prósent. Verðbólga á tímabilinu var tæp fimm prósent. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir það áhyggjuefni að verðbólgan sé að éta upp kaupmáttinn. "Við höfum litlar vísbendingar um launaskrið á almennum vinnumarkaði þannig að okkur sýnist að þorri launþega hafi verið að fá þrjú prósent launahækkun á síðustu tólf mánuðum en á sama tíma hefur verðlag hækkað um 4,6 prósent," segir hann. "Kaupmáttur þeirra, sem ekki hafa fengið aðrar launahækkanir en hinar almennu samningsbundnu hækkanir í janúar síðastliðnum, er að rýrna og það er verulegt áhyggjuefni," segir Ólafur Darri. Hann bendir á að ekki sé lengur deilt um að að forsendur kjarasamninga séu brostnar því verðbólga hafi verið langt umfram það sem gert hafi verið ráð fyrir í samningum. Hann segir að vitað hafi verið þegar gengið var til samninga að hagkerfið væri á leið inn í þensluskeið. "Samningar til fjögurra ára áttu að vera grunnur að því að hægt væri að stýra hagkerfinu svo upp mætti byggja kaupmátt og leggja grunn að framtíðaruppbyggingu starfa," segir Ólafur Darri. "Við erum hins vegar að upplifa það núna að ákveðin utanaðkomandi áföll, eins og olíuverðshækkun, og hagstjórnarmistök, á borð við breytingar á íbúðalánamarkaði og illa tímasettar skattalækkanir, hafa leitt til þess að verðbólga hefur verið miklum mun meiri en við áttum von á," segir hann.
Innlent Mest lesið Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Klemmdist undir rútu Innlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent