Nauðgaði stúlku á stigapalli 1. nóvember 2005 06:15 Hafnarstræti í Reykjavík. Tvítugri stúlku var í sumar nauðgað af starfsmanni veitingastaðar sem fór með henni og fleira fólki í eftirpartí.
Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tvítugri stúlku á stigapalli í húsi í Reykjavík í sumar. Þá var manninum gert að greiða stúlkunni 700.000 krónur í skaðabætur auk 359.145 króna í sakarkostnað. Stúlkan hafði föstudagskvöldið 23. júlí farið með vinkonum sínum á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Þar hitti hún manninn sem nauðgaði henni en hann starfaði á staðnum. Stúlkurnar, maðurinn og fleiri fóru fótgangandi seint um kvöldið í hús þar sem skemmtanahald hélt áfram. Stúlkan og maðurinn ræddust eitthvað við um kvöldið. Stúlkan og vinkonur hennar bera að vísa hafi átt manninum úr samkvæminu eftir að hann lagði sig í óleyfi inni í herbergi húsráðanda. Stúlkan fór hins vegar með honum fram á stigapall og ræddi við hann. Þegar hún ætlaði aftur inn í íbúð hafi hann haldið henni, þröngvað hönd sinni ofan í buxur hennar og nauðgað henni upp við vegg. Stúlkan bar að árásin hafi hætt þegar hún náði að klípa manninn í liminn. Þá var hún farin að gráta og margbúin að segja að þetta vildi hún ekki. Maðurinn neitaði nauðguninni en kvað stúlkuna hafa látið eins og hún hafi skipt um skoðun um atlotin. Dómnum þótti einsýnt að beita hefði þurft talsverðu afli til að rífa buxur stúlkunnar en þær rifnuðu niður úr rennilásnum og ekki lagður trúnaður á orð hans. Maðurinn var hins vegar ekki sakfelldur fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna heldur að hafa "þröngvað henni til kynferðismaka annarra en samræðis með því að stinga fingri inn í leggöng hennar."
Innlent Mest lesið Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Greiðvikni kom í bakið á fjórum Innlent Fleiri fréttir Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent