Mikill viðbúnaður vegna Rítu 21. september 2005 00:01
Mikill viðbúnaður er í Texas vegna Rítu. Fólk sem býr við ströndina hefur verið hvatt til að flýja heimili sín. Þúsundir eru þegar farnar að huga að brottflutningi frá Galveston og borgarstjórinn í Houston hefur beint því til borgarbúa að búa sig undir það versta. Óttast er að fellibylurinn Ríta, sem er orðin fjórða stigs fellibylur og þegar jafnöflugur og Katrín þegar hún skall á suðurströnd Bandaríkjanna, kunni að valda mikilli eyðileggingu þegar hann nær landi á laugardag. Íbúar í Flórída Keys eyjaklasanum, syðst í Bandaríkjunum, sluppu með skrekkinn að þessu sinni þegar Rita fór fram hjá þeim í nótt. Mikil úrkoma og vindur fylgdi fellibylnum en tjón af völdum hans varð þó ekki mikið. Ríta hefur styrkst gríðarlega á leið sinni yfir Mexíkóflóa og æðir áfram í átt að Texasströndum á tæplega 220 kílómetra hraða á klukkustund. Öllum íbúum í borginni Galveston í Texas hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín þar sem óttast er að gríðarleg flóðbylgja myndist þegar Ríta nær landi. Borgarstjórinn í Houston hefur varað íbúa við því versta og hvetur þá sem búa við ströndina að flýja. David Paulison, yfirmaður Almannavarna, hvetur alla íbúa við Mexíkóflóa að fylgjast með storminum og segir að yfirmaður Fellibyljamiðstöðvarinnar hafi sagt að fellibylurinn yrði þriðja eða fjórða stigs. Fellibylurinn geti orðið mjög hættulegur eftir að hann fari inn í flóann þar sem sjór sé mjög heitur. Því verði fólk að hlusta á yfirvöld ef þau segi því að yfirgefa svæðið. Tugþúsundir lögreglu- og björgunarmanna hafa verið settar í viðbragðsstöðu vegna ástandsins. Talið er að Ríta geti einnig valdið usla í Louisiana og hefur því öllum þeim, sem snúið höfðu aftur til New Orleans, verið skipað að fara aftur burt. Mikil hræðsla hefur aftur gripið um sig í Louisiana, en meira en þúsund manns hafa fundist látnir eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna í síðasta mánuði.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira