Erlent

Á annað hundrað skotnir til bana

Bardögum lauk í gær í aðgerðum hersveita Bandaríkjanna og Íraksstjórnar í borginni Tal Afar við landamæri Sýrlands. Borgin hefur frá innrás bandamanna verið eitt höfuðvígja uppreisnarmanna. Yfirmenn hersveita Bandaríkjanna og Íraks gáfu það út að sókninni skyldi haldið áfram og árangrinum fylgt eftir. Fjölmargir uppreisnarmenn sluppu þó frá hersveitunum í gegnum jarðgöng yfir landamærin til Sýrlands. 8500 hermenn leituðu í hverju húsi í borginni að uppreisnarmönnum og áður en bardögum lauk höfðu 156 uppreisnarmenn verið skotnir til bana og 246 til viðbótar handteknir. Hersveitirnar fundu, samkvæmt þeim fréttum sem borist hafa frá borginni, sprengiefnaverksmiðju, 18 vopnabyrgi og 100 kílómetra löng jarðgöng undir landamærin. Bandaríkjamenn segja Sýrlendinga aðstoða uppreisnarmenn í aðgerðum sínum gegn ráðandi öflum í Írak, meðal annars með því að smygla vopnum yfir landamærin og skjóta skjólshúsi yfir uppreisnarmenn á flótta undan réttvísinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×