Leitin að Meistaranum hefst í dag 12. nóvember 2005 08:00 Logi Bergmann. Þykir vera ansi ógnandi á þeim myndum sem voru teknar en segir að það hafi ekki verið ætlunin.
Í dag fara fram próf fyrir nýjan spurningaþátt Stöðvar 2, Meistarann. Verða þau á fjórum stöðum: í Háskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Egilsstöðum og Ísafirði auk Hagaskóla. Ekki þarf að skrá sig á neinn hátt heldur eingöngu mæta á svæðið og svara þeim spurningum sem lagðar eru fyrir en það kostar ekkert að taka þátt. Þátttaka fyrir sjónvarpsþætti hefur verið með eindæmum góð að undanförnu og sagðist Logi Bergmann Eiðsson því vera bjartsýnn á framhaldið. "Viðbrögðin hafa verið góð og við erum með allt klárt, segir spyrillinn. Spurningarnar eru komnar í hús og öll gögn tilbúin", bætir hann við. Logi getur ekki leynt eftirvæntingu sinni enda segist hann aldrei hafa verið jafn spenntur fyrir neinu í sjónvarpi. "Það má kannski líkja þessu við fyrstu Idol - þáttaröðina því við rennum blint í sjóinn", útskýrir hann og bætir við að fyrirvarinn sé kannski ekki mikill. Mikil leynd hefur hvílt yfir spurningunum en Logi segir að þær verði ekki á neinn hátt svínslegar. "Þú getur verið spurður að því hver sé formaður verkamannaflokksins í Noregi, hver málaði Ópið eða hver sé söngvarinn í Coldplay", útskýrir Logi og keppnin sé fyrir alla því hún byggist ekki síður á heppni en á gáfum. Sá sem stendur uppi sem sigurvegari mun hljóta fimm milljónir en allir þeir sem komast í þáttinn verða leystir út með einhvers konar gjöfum. Að undanförnu hafa birst myndir af Loga í stellingum fyrir þáttinn. Haft hefur verið á orði að hann líkist Magnúsi Magnússyni sem stjórnaði Mastermind við góðan orðstír en Logi segir það ekki hafa verið ætlunina. Þá hefur einhverjum einnig þótt hann ógnandi. "Það er nú alls ekki tilgangurinn en við vildum hafa smá dulúð og ég held að Ara Magg hafi tekist það".
Innlent Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira