Undirstaða lífsins 22. nóvember 2004 00:01
Mjólk er undirstaða lífsins segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sem í dag tilkynnti um óbreytt mjólkurverð, þriðja árið í röð. Guðni eru reiðubúinn að skoða opinbera niðurgreiðslu mjólkur og annarra matvæla til skólabarna og segir alla Íslendinga eiga að hafa efni á góðum mat. Verðlagsnefnd búvöru hefur ákveðið að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum skuli haldast óbreytt um áramótin. Bændur fái hins vegar þriggja komma fjögurra prósenta hækkun sem sé í fullu samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs. Þetta eru gleðifréttir í stíl við skattalækkunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar segir landbúnaðarráðherra. Hagræðing í mjólkuriðnaði hafi nú sparað neytendum fjögur hundruð milljónum króna árlega síðusta áratuginn. Hann segir kerfið okkar gott, opinber gegnsæ verðlagning og löglegt samráð, neytendum tryggt gott verð og atvinnugreinin fær tækifæri til að styrkjast áður en hún fær samkeppni utan úr heimi. Það eina sem veldur áhyggjum sé minnkandi mjólkurneysla íslensku þjóðarinnar. Guðni segir gríðarlega mikilvægt að allir átti sig á því að mjólkurvaran sé undirstaða lífsins. Guðni segir vel koma til greina að niðurgreiða mjólk til barna og unglinga í ljósi þess að læknar segja okkur leggja inn í beinabankann fyrir tvítugt en taka út úr honum eftir fimmtugt. Hann telur afar mikilvægt að börn fái notið hollrar fæðu. Hann segist hafa glaðst yfir því að sjá hvaða mat sé boðið upp á í skólunum. Guðni segir að sveitarfélögin og ríkið þurfi að koma saman að því að öll börn hafi efni á því að borða góðan og hollan mat í skólanum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Sjá meira