Aðeins verið að skila fjórðungi 22. nóvember 2004 00:01
Útgjöld ríkisins vegna vaxtabóta lækka um þrjúhundruð milljónir á næsta ári vegna breytinga á vaxtabótakerfinu sem lýst er í skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar, segir að útgjöld ríkisins vegna barnabóta hafi lækkað um tíu milljarða á níu árum. Fjórðungi þess verði skilað samkvæmt frumvarpinu nú. Einungis verða greiddar 95% af útreiknuðum vaxtabótum fyrir árið 2005 og mun það skila þrjúhundruð milljónum í ríkiskassann. Einnig verður hlutfall vaxtagjalda af skuldum lækkað úr 5,5% niður í fimm prósent árið 2006. Í fyrra var hlutfallið lækkað úr 7% í 5,5%. Það var réttlætt með því að raunvextir lána hefðu lækkað mjög mikið. Sú þróun hefur haldið áfram ekki síst með mikilli vaxtalækkun á íbúðalánum og segir í frumvarpinu að með breytingunni á vaxtabótakerfinu sé dregið úr hvata til frekari skuldsetningar. Alls kosta skattalækkanirnar ríkissjóð um 6,2 milljarða og frá því dregst svo lækkun vegna vaxtabótanna. Barnabætur hækka um 2,4 milljarða á árunum 2006 og 2007. Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni að rétt sé að hafa í huga að barnabætur hafi lækkað verulega að raungildi frá því sem þær voru árið 1995, þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Á síðustu níu árum hafi útgjöldin verið um 10 milljörðum lægri en þau hefðu verið ef raungildi þeirra á þessum árum hefði haldist óbreytt frá því sem það var á árinu 1995. Á árunum 2006 og 2007 ætli ríkisstjórnin því að skila innan við fjórðungi þess sem barnafólk hafi verið hlunnfarið um á síðustu 10 árum. Það sé allt og sumt.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fleiri fréttir Fystu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“