Innlent

Hóta að loka Rækjuveri

Sveitarfélagið Vesturbyggð hefur hótað að loka Rækjuveri, einum stærsta vinnustaðnum á Bíldudal vegna skulda fyrirtækisins vegna vatnsnotkunar. Gefinn hefur verið frestur til loka nóvember til að ná samkomulagi við forsvarsmenn fyrirtækisins en náist það ekki verður lokað fyrir vatnið og málið sent lögfræðingi til meðferðar. Bæjarins besta greinir frá þessu í dag. Þar segir að deilt sé um fjárhæðir enda hafi neysluvatn verið lélegt á Bíldudal og oft hafi þurft að loka fyrir vinnslu vegna vatnsskorts. Þrettán manns vinna hjá fyrirtækinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×