Gæti náð láglendi á hálftíma 30. október 2004 00:01
Stór hluti láglendis á milli Eyjafjalla og Þjórsár færi undir vatn ef þar yrði jökulhlaup í líkingu við það sem varð fyrir tólf hundruð árum í Markarfljóti. Hættumat vegna eldgosa í Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli sýnir að hlaup úr hlíðum jöklanna gæti náð láglendi á innan við hálftíma. Hafist var handa við gerð hættumatsins í fyrra en nýjar upplýsingar um stærri hlaup niður markarfljótsgljúfur eftir lok ísaldar auk vaxandi skjálftavirkni í suðvestanverðum mýrdalsjökli voru meðal ástæðna þess. Stærð þessara jökulhlaupa var slík að þau flæddu yfir stóran hluta flatlendis á milli Eyjafjalla og Þjórsár. Rennslið var á milli hundrað þúsund rúmetrar á sekúndu og allt uppí þrjúhundruð þúsund rúmmetra. Stóru hlaupin urðu á fimm til sjöhundruð ára fresti, en talið er að tólf hundruð ár séu frá því síðasta. Við núverandi aðstæður myndi hlaupið breiða úr sér á laáglendinu yfir landeyjar og ná allt til Þykkvabæjar í vestri. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra segir að færi allt á versta veg yrði að flytja yfir 300 manns og reiknað væri með að það yrði flutt til Hellu ef svo bæri undir, enda liggi Hella hærra og ólíklegt sé að hlaupið næði þangað. Niðurstöðurnar voru kynntar á opnum fundum sem almannavarnanefnd Rangárvallasýslu boðaði til í dag. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor, bendir á að engin svona atburður hafi gerst síðan land byggðist. Magnús Tumi segir að ekki þurfi að líða meira en klukkutími frá því að gos hæfist uns hlaup væri komið að jökuljaðri. Hins vegar líði tveir og hálfur tími til viðbótar uns hlaupið næði efstu byggðum og mun lengri tími uns það næði alla leið að Þykkvabæ. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra segir að sér sýnist að hægt væri að bjarga öllum mannslífum sem væru í hættu ef það versta gerðist, en líkurnar á því væru ekki miklar. Hins vegar þurfi áætlanirnar að vera í lagi og að því sé verið að vinna.
Fréttir Innlent Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira