Innlent

Ómetanleg landkynning

Kynning á landi og þjóð á borð við þá sem nýverið fór fram í Frakklandi þar sem ísjaki úr Jökulsárlóni var fluttur til Parísar styrkir ímynd landsins og er ómetanleg fyrir markaðssetningu ferðaþjónustunnar, segir í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin lýsa ánægju með átakið, sem staðið hefur ytra undanfarinn hálfan mánuð og verið kynnt með áberandi hætti. "Mikið hefur verið fjallað um Ísland og einstaka listviðburði í blöðum, sjónvarpi og útvarpi í Frakklandi," segja samtökin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×