Innlent

Hafnfirðingar vilja nýja sundhöll

Hafnfirðingar kölluðu á íbúaþingi sem haldið var síðasta laugardag eftir úrbætum vegna langra biðlista í tónlistarnámi. Einnig var kallað eftir nýrri sundhöll og bættri aðstöðu til iðkunar vetraríþrótta.  Íbúaþingið var haldið í íþróttahúsinu við Strandgötu og sóttu það um 370 Hafnfirðingar. "Útivist og stígar voru mikið til umræðu og komu fram óskir um bættar stígatengingar innan bæjarins, við útmörkina og til nágrannabæjanna," segir í tilkynningu bæjarins og áréttað að á þinginu hafi komið fram margar gagnlegar ábendingar og hugmyndir sem teknar verði til umfjöllunar í ráðum og nefndum bæjarins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×