Innlent

Áttunda sæti í samkeppnishæfni

Ísland er í áttunda sæti yfir samkeppnishæfustu ríki heims. Það hefur færst upp um fjögur sæti frá því í fyrra, meira en nokkurt annað ríki í Vestur-Evrópu. Þetta kemur fram í árlegu yfirliti World Economic Forum um samkeppnishæfi rúmlega 100 ríkja í heiminum. Listinn og skýrslan voru gerð opinber í dag. Efstir á listanum trjóna Finnar, annað árið í röð, þar á eftir koma Bandaríkin, Svíþjóð og Danmörk. Þessi fjögur ríki halda stöðu sinni frá í fyrra. Þá kemur Tævan, síðan Singapúr og Sviss er í sjöunda sæti. Þá er komið að Íslandi og þar á eftir koma Noregur og Ástralía. Stökk Íslands á meðal toppþjóðanna er mest á milli ára, eða fjögur sæti. Sterk staða Norðurlandaþjóðanna vekur einnig athygli en þær skipa sér allar á topp tíu. Ef litið er á stöðu þeirra fimmtán þjóða sem voru í Evrópusambandinu nú og í fyrra sést að engin þeirra tekur viðlíka stökk og Ísland. Það sem meira er, margar þeirra falla neðar á listann. Í skýrslunni er leitað svara við því af hverju framleiðni aukist ekki á meðal þjóða Evrópu á meðan slíkt hafi gerst í Bandaríkjunum. Skýringin sé meðal annars þungt stofnanaveldi í Evrópu, skortur á nýhugsun og sköpun og skortur á æskumenningu þar sem ungt fólk vinni með námi líkt og það geri í Bandaríkjunum. Svo verða menn kannski að svara því sjálfir hvoru forminu Ísland líkist meira. En aftur að Íslandi og góðri stöðu þess. Skýrsluhöfundar segja hana einkum því að þakka að aðgengi að lánsfé sé gott hér á landi og að samdráttur hafi ekki orðið hér líkt og víða annars staðar. Hins vegar séu vextir háir og sparnaður fremur klénn. Þá hefur tæknivæðing dregist saman hér á landi í samanburði við aðrar tæknivæddar þjóðir en á móti því vegur að hlutfall háskólanema hækkar ört hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×