Framsókn gegn R-lista framboði 13. október 2004 00:01
Gestur Gestsson, formaður Félags framsóknarmanna í Reykjavík norður, vill að Framsóknarflokkurinn bjóði sjálfur fram í næstu borgarstjórnarkosningum en ekki undir merkjum Reykjavíkurlistans. Gestur var kosningastjóri Framsóknarflokksins í síðustu alþingiskosningum og sat í kosningastjórn R-listans. Hann segist verða var við mikinn áhuga á þessu innan flokksins. "Ef við ætlum að vaxa, og framtíð flokksins mun ráðast hér í Reykjavík, þá hljótum við að þurfa að brjótast út úr Reykjavíkurlistanum. Það eru að alast upp kynslóðir í borginni sem þekkja ekkert annað en R-listann." Gestur segir flokkinn geta farið í samstarf um Reykjavíkurlista eftir næstu borgarstjórnarkosningar en hann þurfi að fara fram undir eigin merkjum í kosningunum sjálfum. "Mér finnst eins og menn séu að vakna af þyrnirósarsvefni í þessum málum. Við erum að ala Þórólf Árnason upp sem borgarstjóra án þess að vita hvaða flokki hann tilheyri. Á meðan eru okkar eigin borgarfulltrúar óþekktir." Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins innan Reykjavíkurlistans, segir að það hafi ávallt verið skiptar skoðanir um það innan Framsóknarflokksins, eins og annarra flokka sem standa að Reykjavíkurlistanum, hvort flokkarnir ættu að bjóða fram undir nafni flokkanna eða saman í R-listanum. Það sé því ekkert nýtt í ummælum Gests. Alfreð segir hins vegar alls ekki tímabært að taka ákvörðun um það og að hún verði væntanlega ekki tekin fyrr en seinni hluta næsta árs. Fyrir skömmu ritaði Guðlaugur Sverrisson, stjórnarmaður í Félagi framsóknarmanna í Reykjavík suður, á vefsíðu framsóknarfélaganna í borginni að hann tæki undir þá skoðun Halldórs Ásgrímssonar, formanns flokksins, að Framsóknarflokkurinn yrði sterkari við að bjóða fram B-lista í Reykjavík. Það myndi efla starfið innan hans og eins yrði flokkurinn sýnilegri borgarbúum.
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira