5 líkamsárásir kærðar 31. október 2004 00:01
Fimm líkamsárásir voru kærðar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Um þrjúleytið var kallað á sjúkrabíl að skemmtistaðnum Prövdu í Austurstræti eftir átök dyravarðar og eins gesta staðarins. Dyravörðurinn hafði hent gestinum út af staðnum og réðst gesturinn þá á dyravörðinn og sparkaði og sló í hann, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Gesturinn var fluttur á slysadeild og hefur kært dyravörðinn fyrir ofbeldi en dyravörðurinn hefur kært gestinn á móti fyrir líkamsárás. Um fjögurleytið kom lögreglan að slagsmálum við gatnamót Lækjargötu og Vonarstrætis. Sá sem talinn var upphafsmaður og gerandinn í málinu var handtekinnn og fluttur á lögreglustöð. Um fimmleytið í morgun var lögreglan kölluð að heimahúsi við Grettisgötu en þar slógust tveir bræður á fimmtugsaldri. Annar þeirra fékk skurð í andlit og var fluttur á slysadeild. Óvíst er hvort þessi bræðraslagsmál verða kærð. Um hálfsexleytið var lögregla kölluð að skemmtistaðnum Ópus við Hafnarstræti. Þar hafði maður lamið annan. Fórnarlambið var flutt á slysadeild en árásarmaðurinn er ófundinn. Og um sexleytið í morgun ók lögreglan fram á slagsmál í Austurstræti við Lækjartorg. Þar var einn maður handtekinn og færður í fangageymslu. Af þessari lýsingu mætti ætla að allt hafi logað í slagsmálum í miðborginni í nótt en að sögn lögregluvarðstjóra þykir þetta ekki óvenju mikið, miðað við laugardagskvöld í Reykjavík.
Fréttir Innlent Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Fleiri fréttir Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Sjá meira