Árni skipaður á ný 30. september 2004 00:01
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra skipaði í gær dr. Árna Einarsson líffræðing til þess að gegna áfram stöðu forstöðumanns Náttúrurannsóknastöðvarinnar til næstu fimm ára. Árni hefur starfað sem forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar frá árinu 1996. Umsækjendur um stöðuna auk Árna voru Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og dr. Ragnhildur Sigurðardóttir vistkerfavistfræðingur. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að þann 1. október nk. taki gildi ný lög um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og um leið falli úr gildi lög frá árinu 1974 um svæðið. Samkvæmt nýju lögunum njóta Laxá, Mývatn og nálæg votlendissvæði sérstakrar verndar en gert er ráð fyrir að önnur svæði í Skútustaðahreppi sem hafa hátt verndargildi verði friðlýst á grundvelli náttúruverndarlaga. Í lögunum eru einnig nýmæli um vernd vatnasviðs Laxár og Mývatns og um gerð verndaráætlunar fyrir Laxá og Skútustaðahrepp. Önnur nýmæli í lögunum eru að stjórn Náttúrurannsóknastöðvarinnar er lögð niður og stjórn stofnunarinnar alfarið færð í hendur forstöðumanns beint undir yfirstjórn ráðherra. Samkvæmt lögunum skal umhverfisráðherra skipa sérstakt fagráð, forstöðumanni til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknarstefnu og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rannsóknir á vatnasviði Mývatns og Laxár. Mun það verða gert fljótlega segir í tilkynningu umhverfisráðuneytisins.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira