Innlent

Gótt verður á austurlandi

Geggjað veður hérna fyrir austan sögðu viðmælendur fréttastofu í dag. Nokkur þúsund manns eru á hátíðum á Austfjörðum um helgina, meðal annars í Neskaupstað og á Borgarfirði eystri þar sem hátíðin Álfaborgarsjens er haldin. Þar tóku menn því frekar rólega í dag eftir mikil hátíðahöld í gærkvöld og nutu samverunnar með fjölskyldunni í blíðunni. Þá var útimarkaður við Fjarðatorg en í kvöld mun hljómsveitin Nefndin skemmta fólki með lögum Bjartmars Guðlaugssonar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×