Eldvörnum ábótavant á Reykjalundi 25. nóvember 2004 00:01
Fjárskortur kemur í veg fyrir að brunavarnir á endurhæfingarstöðinni Reykjalundi verði bættar strax. Slökkviliðið vill beita dagsektum, en þeim er ekki beitt nema öryggi fólks sé ógnað. Málið hefur tafist mánuðum saman í bæjarstjórn, sem þarf að veita heimild til dagsekta. Á þessu ári hefur slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sent 531 húseiganda athugasemdir vegna ónógra brunavarna. Af þeim hefur tæpur helmingur, eða 236, enn ekki gert nauðsynlegar úrbætur og hafa fengið frest. Að sögn Bjarna Kjartanssonar, framkvæmdastjóra forvarnardeildar slökkviliðsins, vofa dagsektir yfir níu af þeim 236 aðilum sem hafa látið undir höfuð leggjast að bæta úr eldvörnum en til slíkra þvingunaraðgerða er einungis gripið ef sýnt þykir að öryggi fólks sé ógnað. Þó ýmislegt hafi verið lagað í eldvarnarmálum er margt eftir, m.a. eru ekki komnar eldvarnarhurðir á milli allra hólfa. Helgi Kristjónsson, fjármálastjóri Reykjalundar, segir þá hafa verið vinna í málum sínum undanfarna mánuði. Ein af ástæðunum fyrir seinaganginum sé fjárskortur þó það sé kannski ekki góð ástæða til að bera við þegar um öryggi fólks sé að ræða. Dagsektarferlið er þó seinvirkt enda þarf viðkomandi sveitarfélag að samþykkja að til þess sé gripið. Í tilfelli Reykjalundar hefur bæjarstjórn Mosfellsbæjar ekki samþykkt að dagsektum verði beitt, þrátt fyrir að beiðni slökkviliðsins hafi legið á borði hennar frá byrjun júlí. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að afstaða verði tekin á bæjarstjórnarfundi eftir tvær vikur. Slökkviliðið hefur einnig heimild í lögum til að beita lokunaraðgerðum, koma upp öryggisvakt eða gangast í að viðunandi brunavörnum sé komið upp á kostnað eigenda. Bjarni Kjartansson, framkvæmdastjóri forvarnardeildar slökkviliðsins, segir afar sjaldgæft að gripið sé til slíkra úrræða, enda geri öguð vinnubrögð góðrar stjórnsýslu það að verkum að slíkt er seinvirkt og ekki sérlega skilvirkt. Hann telur hins vegar brýna þörf á að slökkviliðið hafi heimild til beinna sekta, án íhlutunar bæjarfélags, í líkingu við sektir lögreglu fyrir hraðakstur og umferðalagabrot.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira