Stysta ljósmyndasýning sögunnar 25. nóvember 2004 00:01
Stysta ljósmyndasýning Íslandssögunnar, eftir því sem næst verður komist, var við Reynisdranga í gær. Brim batt enda á sýninguna aðeins tólf mínútum eftir að hún hófst. Sýninguna hélt Ragnar Axelsson ljósmyndari í samvinnu við Mál og menningu í tilefni af útkomu ljósmyndabókar sem hlotið hefur titilinn Andlit norðursins. Forsíðumynd bókarinnar er tekin í næsta nágrenni við Dyrhólaey og sýningin í fjörunni var haldin til heiðurs manninum á myndinni, Guðjóni Þorsteinssyni, bónda í Mýrdal. Guðjón fékk afhent fyrsta eintak bókarinnar við tilefnið. Ragnar segir myndina hafa verið upphafið að sýningum sem hafi farið út um allan heim og því eigi hann Guðjóni mikið að þakka. Hann segir Guðjón líka hafa fengið hlutverk í auglýsingum og kvikmyndum út á myndina. Því sé þetta líklega ein af uppáhaldsljósmyndum sínum þó það sé reyndar ljósmynd morgundagsins hverju sinni. Myndirnar í bókinni hefur Ragnar tekið á síðustu fimmtán árum í þremur löndum: Íslandi, Færeyjum og Grænlandi, og myndefnið er gjarnan fólk og lífshættir þess. Hann segir þetta það skemmtilegasta sem hann geri og þetta séu eiginlega hans málverk. Ragnar kveðst hafa allar myndirnar í svarthvítu meðal annars vegna þess að meiri vinna felist í því og þess vegna verði myndirnar meira eins og börnin manns. Menn sáu hins vegar fljótt í gær að fjara er ekki sérlega heppilegur staður til langtíma sýningarhalds. Sýningin hafði ekki staðið nema í tólf mínútur þegar menn neyddust í snarhasti til að rífa myndirnar upp úr sandinum og flýja undan haföldunni. Þetta varð því líklega stysta ljósmyndasýning sögunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Sjá meira