Miltisbrandur kann að koma upp 25. nóvember 2004 00:01
Auglýst hefur verið eftir upplýsingum um gamlar grafir þar sem skepnum hefur verið fargað vegna miltisbrands. Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, segir að merkja þurfi þessi svæði til að koma í veg fyrir að hreyft verði við sýktri jörð, því ef miltisbrandssýktar dýraleifar komi upp á yfirborðið kunni bakteríur að berast í menn og dýr. Því þurfi að sýna aðgát þegar grafið sé fyrir skólpræsum, húsum og slíku. Sigurður segir að miltisbrandur sé bráð og lífshættuleg sýking sem valdi garnabólgum og blæðingum úr vitum dýra. Miltisbrandur geti líka valdið lífshættulegu drepi hjá mönnum berist hann í sár. Almenningur á þó ekki að vera í teljandi hættu á að sýkjast. Síðast kom upp miltisbrandssýking hér á landi árið 1965, þegar einar fimm kýr drápust og tveir menn fengu útbrot á handleggi. Sýkingin reyndist ekki banvæn, enda eru til virk lyf við henni. Sigurður segir að sýkingin hafi gengið á landinu í hundrað ár, frá 1865 til 1965. Hún náði nokkurri útbreiðslu á nítjándu öld í búpeningi og náði hámarki um aldamótin 1900. Þá barst miltisbrandur hingað með innfluttum ósútuðum húðum sem komu alla leið frá Afríku í gegnum Danmörku. Þá drápust nokkrir tugir skepna. Síðar náðist að hefta sýkinguna með því að banna innflutning á húðunum. Mikið hefur verið fjallað um miltisbrand í Bandaríkjunum á undanförnum árum. Þar hafa óvandaðir menn sent hann með pósti til einstaklinga, stofnana og fyrirtækja.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Sjá meira