Landhelgisbrot við Svalbarða 11. ágúst 2004 00:01
Íslensk skip sem verða við síldveiðar á Svalbarðasvæðinu þegar veiðibann Norðmanna tekur gildi næsta sunnudag fá viðvörun og verða áhafnir í kjölfarið handteknar fyrir landhelgisbrot láti þær ekki af veiðum. Íslensk skip hafa þegar veitt um 75 þúsund tonn af síld við Svalbarða. Norskum yfirvöldum hefur ekki verið greint frá stuðningi íslenskra stjórnvalda við útgerðir til að stunda veiðar umfram norska aflaveiðiheimild, segir Johan Williams, deildarstjóri í norska sjávarútvegsráðuneytinu. Hann vill ekki tjá sig um viðbrögð norskra stjórnvalda kæri íslensk stjórnvöld þau fyrir alþjóðadómstól. Málið sé óskylt. "Við ætlumst til þess að allar þjóðir sem veiða á Svalbarðasvæðinu virði reglur svæðisins og 80 þúsund tonna aflaheimildina. Eins og vanalega stöðvum við skip sem veiða umfram heimild og höfum ákveðnar verkreglur til þess sem við fylgjum séu þær brotnar. Við væntum að íslenskar útgerðir sem og íslensk stjórnvöld fylgi reglunum," segir Johan. Utanríkisráðuneytinu barst skeyti um lokun svæðisins á miðvikudag. Axel Nikulásson, sendiráðunautur á Auðlinda- og umhverfisskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir ráðuneytið funda með útgerðarmönnum næstu daga um hvernig þeir vilji sjá stuðninginn í framkvæmd en íslensk stjórnvöld hafa gefið útgerðum leyfi til að veiða 128 þúsund tonn af síld. "Við erum að skoða næstu skref og þau eiga að skýrast á næstu dögum," segir Axel. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir útvegsmenn oft hafa fundað með ráðuneytinu en þar sem ekki sé vitað hvernig Norðmenn bregðist við veru skipanna hafi engar ákvarðanir verið teknar. "Pólitískur stuðningur stjórnvalda er gríðarlega mikilvægur útgerðarmönnum," segir Friðrik og að útgerðarmenn vilji sá fjárhagslegan stuðning vegna mikilvægi fiskveiðisvæðisins fyrir íslenskan efnahag þótt hann ráði ekki úrslitum. Mikilvægast sé að Norðmenn hætti að nota norsk lög á svæðinu og byggi lög á grunni Svalbarðasáttmálans.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Sjá meira