Fá ekki að leggja vatnslögn 11. ágúst 2004 00:01
Bæjarstjórinn í Kópavogi furðar sig á því að borgarstjórn Reykjavíkur skuli neita að leyfa Kópavogsbæ að leggja vatnslögn um land borgarinnar. Hann telur að ekki sé heil brú í röksemdafærslu Reykjavíkurborgar og er reiðubúinn að fara með málið fyrir dómstóla. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi er ekki með neina tæpitungu þegar hann tjáir sig um neitun Reykjavíkurborgar um vatnslögnina. Hann segir að með þessu sé verið að færa samskipti bæjarfélaganna langt aftur í tímann. Kópavogsbær keypti nýlega nýtingarrétt á vatni í hinum svokölluðu Vatnsendakrikum, í Heiðmörk, en eignarhald á því landi hefur verið nokkuð umdeilt. Í kjölfarið sótti Kópavogsbær um leyfi Reykjavíkurborgar til þess leggja vatnsleiðslu um land borgarinnar í Heiðmörk, til Kópavogs. Reykjavíkurborg synjaði í gær, um þetta leyfi, og ber fyrir sig deilur um landa- og lögsögumörk. Þetta svar telur bæjarstjóri Kópavogs vera út í hött. Hann segist mjög undrandi og vonsvikinn því þetta sé ekki viðtekinn háttur í samskiptum sveitarfélaga í dag. Hann segir þá röksemdafærslu Reykjavíkurborgar að bíða verði eftir áliti Hálendisnefndar vera einungis til þess ætlaða að drepa málinu á dreif. Hann segir landið sem Kópavogsbær ætli að bora í, ótvírætt í eign Kópavogsbæjar.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Sjá meira