Ætla að kaupa BN-bankann 15. nóvember 2004 00:01
Íslandsbanki býðst til að kaupa öll hlutabréf í norska BN-bankanum. Tilboðið er lagt fram hálfum öðrum mánuði eftir að Íslandsbanka var veitt heimild til að kaupa Kredítbankann. Íslandsbanki vill staðgreiða hlutinn á 320 norskar krónur, sem er um 19 prósentum yfir gengi bankans í norsku Kauphöllinni í lok síðasta viðskiptadags og 25 prósentum yfir meðalgengi síðastliðinna sex mánaða, segir í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka. Ef lögð eru saman hlutabréf sem þegar eru í eigu Íslandsbanka og vilyrði sem gefin hafa verið fyrirfram um sölu bréfa í samræmi við tilboðið, hefur Íslandsbanki nú þegar tryggt sér um 46 prósent hlutabréfa í BNbank. Íslandsbanki hefur skilgreint Noreg og Ísland sem heimamarkaði og hyggst leggja áherslu á frekari vöxt á norska markaðnum. BNbank er afar samkeppnishæft og vel rekið fjármálafyrirtæki, sem náð hefur markverðum árangri og fellur vel að stefnu Íslandsbanka. Tilkoma BNbank, með sinn trausta rekstur og öfluga árangur, mun marka stöðu og afkomu Íslandsbanka umtalsvert í framtíðinni. Áætlað tilboðstímabil er frá og með 29. nóvember til og með 17. desember Tilboðið í BNbank er háð hefðbundnum skilyrðum, svo sem samþykki yfirvalda. Íslandsbanki mun fjármagna kaupin með útgáfu nýrra hluta og með víkjandi lánum. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að sameina Íslandsbanka og BNbank í öfluga íslensk-norska bankasamstæðu. Hyggst Íslandsbanki kanna kosti samhliða skráningar hlutabréfa bankans í Kauphöllinni í Ósló auk Kauphallar Íslands.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira