Veiðigjaldið hafi ekki slæm áhrif 18. júlí 2004 00:01
Friðrik Már Baldursson hagfræðingur segir að veiðigjald sem lagt verður á útgerðir sé ekki svo íþyngjandi að það hafi slæm áhrif á afkomu þeirra. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir hins vegar að álögur á borð við veiðigjaldið hljóti að þrengja að starfsskilyrðum greinarinnar. Rúmlega 900 milljóna króna veiðigjald verður lagt á útgerðirnar í fyrsta skipti í haust og er það að hluta til hugsað sem hlutdeild í þeim kostnaði sem ríkið leggur fram til eftirlits og rannsókna í sjávarútveginum. Gjaldið er sett fram sem tilraun til að ná sáttum um þessi mál en við útreikning á því er tekið mið af aflaverðmæti síðasta árs og aflaheimildum næsta árs. Það nemur 6% í fyrsta skipti og hækkar síðan og verður 9,5% árið 2009. Forsvarsmenn útgerðarfyrirtækjanna óttast að gjaldtakan geti reynst fyrirtækjunum erfið. Friðrik Már Baldursson hagfræðingur, sem var formaður kvótanefndarinnar svokölluðu sem skipuð var til að endurskoða lögin um stjórn fiskveiða, telur að gjaldið muni ekki reynast útgerðunum þungur baggi. Hann segir að eins og gjaldið var reiknað út sé það hugsað sem hóflegt afgjald útgerðarinnar fyrir hinni sameiginlegu auðlind landsmanna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að sérstakar álögur á borð við veiðigjaldið hljóti að þrengja að starfsskilyrðum greinarinnar. Hann bendir á að hér sé um að ræða útflutningsatvinnugrein sem sé fyrst og fremst með starfsemi úti á landsbyggðinni. Undanfarin misseri hafi skilyrði í sjávarútveginum verið mjög slök, m.a. út af háu gengi krónunnar, háu olíuverði og lélegu aflaverði.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira