Eilíf barátta 18. júlí 2004 00:01
Iðnaðarráðherra segir eilífa baráttu að verjast því að ungt fólk flytji búferlum af landsbyggðinni. Þingmaður Samfylkingar gagnrýnir stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi í byggðamálum. Bæði eru þó sammála um að baráttan sé hvergi nærri töpuð. Það er eilíf barátta að verjast þessari þróun," segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær hefur ungu fólki verið að fækka mikið á landsbyggðinni síðustu árin og veldur þróunin forsvarsmönnum sveitarfélaganna áhyggjum. "Til þess að unga fólkið setjist að á landsbyggðinni þurfa búsetuhættir að gera það áhugavert," segir Valgerður. "Ég fullyrði að ungt fólk vill búa úti á landi en þar þurfa að vera sambærileg atvinnutækifæri við það sem gerist á höfuðborgarsvæðinu." Valgerður segir eflingu búsetuskilyrða aðalmarkmið byggðaáætlunar sem er í gildi og nefnir álver á Austurlandi sem dæmi. "Það hefur gert að verkum að nú þegar er margt ungt fólk, sem ólst upp fyrir austan en var sest að á höfuðborgarsvæðinu, að flytja aftur austur." Valgerður segir að áfram verði unnið að slíkum aðgerðum. "Þetta er vissulega mismunandi milli byggðarlaga en það eru ákveðin svæði illa sett hvað varðar ungt fólk," segir Valgerður. Hún segir einnig aðrar leiðir í undirbúningi til þess að sporna við þróuninni og nefnir sem dæmi að taka á flutningskostnaði til byggðarlaga úti á landi og eflingu nokkurra byggðarkjarna á landsbyggðinni. Valgerður fullyrðir að þegar sjáist árangur. "Við erum farin að sjá mikinn árangur frá því sem var þegar búseturöskunin var sem mest," segir Valgerður. "Þegar maður sér árangur eflir það okkur í að halda áfram á sömu braut." Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar, gagnrýnir hins vegar stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi í byggðamálum. "Við viljum sjá byggðaáætlun sem bragð er af, ekki aðeins orð á blaði eins og verið hefur," segir Kristján. "Það er hægt að búa til ótal skýrslur og annað slíkt en fólkið á landsbyggðinni lifir ekki á skýrslum einum saman." Kristján telur að grípa hefði átt til aðgerða fyrir löngu síðan. "Menn hafa séð þessa þróun árum saman og ekkert gert í því," segir Kristján. "Ég dreg því þá ályktun að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi engan áhuga á því að grípa til mótvægisaðgerða til að sporna við þróuninni."
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira