Innlent

Íþróttafélögin fá 176 milljónir

Akureyrarbær mun styrkja nokkur íþróttafélag í bænum um 176,5 milljónir á næstu fjórum árum. Fyrir helgi voru undirritaðir samningar þar að lútandi í anddyri sundlaugar Akureyrar þar sem viðstaddir voru fulltrúar íþróttafélaganna sem styrkt verða ásamt fulltrúum Akureyrarbæjar. Kristinn Svanbergsson, formaður íþrótta og tómstundaráðs, segir samninginn skipta miklu máli fyrir íþróttalíf bæjarins.   Félögin sem um ræðir eru Golfklúbbur Akureyrar, hestamannafélagið Léttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, KKA akstursíþróttafélag, siglingaklúbburinn Nökkvi og Fimleikaráð Akureyrar. Að auki var gert samkomulag við Bílaklúbb Akureyrar þótt fulltrúar hans væru ekki viðstaddir undirritunina. Fréttavefur Aksjóns greinir frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×