Innlent

Fjórtán teknir fyrir hraðakstur

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt. Eitthvað var um ryskingar og skemmdarverk í miðbænum og fjórtán ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur, flestir utanbæjar. Lögreglan hefur stöðvað sautján ökumenn fyrir hraðakstur undanfarinn sólarhring og ellefu voru stöðvaðir í fyrrinótt fyrir fullþungan fót. Einn ökumaður var ennfremur stöðvaður vegna gruns um að aka ölvaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×