Milljóna-Svíinn dæmdur 12. júní 2004 00:01
Sænski ferðalangurinn sem handtekinn var í Leifsstöð 21. maí síðastliðinn með tvær milljónir króna í reiðufé í vösunum var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar í gær. Hann hafði játað á sig fjársvik við yfirheyrslu og birti sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli honum ákæru í gær. Síðan dæmdi Héraðsdómur Reykjaness hann í fjögurra mánaða fangelsisvist, þar af þrjá mánuði skilorðsbundna. Svíinn var síðan fluttur á Litla-Hraun, þar sem hann afplánar nú. Þetta óvenjulega mál tók á sig endanlega mynd í fyrradag, þegar íslenskur karlmaður var kallaður til yfirheyrslu hjá sýslumannsembættinu sem vitni. Samkvæmt upplýsingum blaðsins var það sá maður sem Svíinn játaði fyrir Héraðsdómi í gær að hafa svikið milljónirnar tvær af. Ekki er með öllu ljóst hvernig viðskipti mannanna höfðu verið þar sem framburður þeirra var ekki samhljóða við yfirheyrslur. Ljóst er þó að Svíinn hafði með blekkingum tilgreinda upphæð af Íslendingnum sem hann hugðist síðan taka með sér úr landi. Þá er ekki með öllu ljóst hvernig Svíinn hugðist nýta sér fjármunina, þegar hann væri kominn á erlenda grund, en talið líklegt að hann hafi verið að flýta sér úr landi og haldið að hann gæti skipt milljónunum í erlenda mynt þar. Maðurinn hafði dvalið hér á landi síðan 6. apríl. Hann hafði gist á ýmsum gistiheimilum, bæði í Reykjavík og Kópavogi. Þegar á dvölina leið leigði hann sér húsnæði sem hann bjó í þar til hann hugðist yfirgefa landið. Hann er fæddur í Tyrklandi en er með sænskan ríkisborgararétt. Hann hefur lengi búið í Svíþjóð og Noregi og hefur komist í kast við lögin erlendis.
Fréttir Innlent Mest lesið Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent Fleiri fréttir Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Sjá meira