Enginn árangur af starfi Hafró 12. júní 2004 00:01 "
Það er hreint með ólíkindum að eftir 20 ára veiðistjórnun á þorski skuli veiðiheimildir enn vera skertar," segir Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og varaþingmaður Frjálslynda flokksins. Hann er æfur yfir tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár og furðar sig á því sem hann segir vera stórundarlegar ákvarðanir hennar. "Árangurinn af störfum Hafró er enginn eða þaðan af verra. Áður en kvótakerfið var tekið upp veiddust hér við land 360 þúsund tonn af þorski árlega. Þetta áratugastarf skilar okkur í dag með herkjum 205 þúsund tonnum. Það þarf ekki að hafa mikla skynsemi til að sjá að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera." Grétar segir dapurt til þess að vita að hinir lærðu menn innan Hafró skuli vera yfir það hafnir að þiggja ráð og hugmyndir frá þeim aðilum sem sækja sjóinn og þekkja. "Þeir hugsa ekkert um hvaða veiðarfæri eru notuð við veiðar og hlusta ekkert á ráð okkar sjómanna og það er mjög miður. Dæmi um þetta er skötuselurinn sem er að koma hingað vegna hlýnunar sjávar. Það fyrsta sem menn gera án þess að nokkur veiðireynsla sé til staðar er að setja á hann kvóta. Þetta er með afbrigðum fáránlegt viðhorf."
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira