Innlent

Fundur í undanþágunefnd á morgun

Að öllum líkindum verður haldinn fundur í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara á morgun, eftir vikuhlé. Fyrir nefndinni liggja tuttugu undanþágubeiðnir sem allar eru vegna fatlaðra barna. Fulltrúi sveitarfélaga í nefndinni segist ítrekað hafa óskað eftir fundi frá 4. október, en þá lágu tíu umsóknir fyrir. Hann segist þó fagna því að verkfallsstjórn hafi heimilað sínum fulltrúa að koma til fundar á morgun. Ekki er það fjöldi nefndarmanna sem gerir fundarhöld erfið. Í undanþágunefnd eiga tveir sæti, fulltrúi sveitarfélaga og fulltrúi kennara. Í samtali við fréttastofu í dag tók fulltrúi kennara undir það að langur tími hafi liðið frá síðasta fundi nefndarinnar en vildi ekki gefa ástæður fyrir því .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×