Innlent

Stal senunni á Alþingi í dag

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra stal senunni í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um táknmálstúlkun þar sem lág fjárframlög og óvissa um túlkaþjónustu voru til umræðu. Ráðherrann lýsti því yfir að hún hefði þegar tryggt að tíu milljónum yrði árlega varið til táknmálstúlkunar. Samfylkingin hafði beðið um táknmálstúlkun á umræðunum og bauðst til að greiða kostnaðinn. Því boði hafnaði forseti alþingis og taldi að slíkt myndi þýða lengri undirbúning. Heyrnarlausir höfðu hinsvegar sjálfir túlk með í för þar sem þeir fylgdust með umræðum á þingpöllum. En menntamálaráðherra stal senunni frá stjórnarandstöðunni öllum að óvörum. Hún sagði ríkisstjórnina hafa samþykkt í morgun að 2 milljónir yrðu veittar aukalega til túlkaþjónustu á þessu ári, auk þess sem fjárframlög til málaflokksins yrðu aukin úr 4 milljónum króna í 10 milljónir á næsta ári og áfram eftir það. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna sagðist fagna mjög aðgerðum menntamálaráðherra og sagði málflutning hennar sköruglegan og hún hefði með aðgerðunum eyðilaggt ræðu sína, sem hefði átt að einkennast af skömmum sem ekki væru viðeigandi nú. Rannveig Guðmundsdóttir, málshefjandi, sagðist ekki geta hælt ríkisstjórninni vegna málsins, þar sem hún hefði dregið lappirnar í málinu í áratug eða meira. Hins vegar fengi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mörg prik í kladdann hjá sér fyrir sinn þátt í málinu Þorgerður sagði þetta málefni sem skipti alla máli og dagurinn í dag væri stór dagur í réttindabaráttu heyrnarlausra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×