Innlent

Brennuvargur enn ófundinn

Ríflega tvær vikur eru nú liðnar síðan Votmúli, atvinnuhúsnæði á Blönduósi, brann nánast til kaldra kola. Enn er talið að kveikt hafi verið í húsinu en Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir að rannsókn hafi engu skilað. "Það er búið að rekja allt sem hægt er að rekja og það hefur ekkert verið upp úr því að hafa," segir Kristján. "Það er búið að tala við fjölda manna og við bíðum eftir að þær eftirgrennslanir beri einhvern árangur." Kristján segist ekki úrkula vonar um að rannsóknin skili einhverju. "Við höfum upplifað það hér að mál upplýsist jafnvel eftir tvö til þrjú ár þannig að það er alls ekki útilokað að þetta skýrist með tíð og tíma." Þrjú fyrirtæki voru með starfsemi í þeim hluta hússins sem brann: matvælaverksmiðja Vilkó, pakkhús kaupfélagsins og Bílaþjónustan. Eldurinn átti upptök sín í skilrúmi milli matvælaverksmiðjunnar Vilkó og pakkhússins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×