Innlent

Framlög til túlkaþjónustu hækkuð

Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu menntamálaráðherra um að hækka fjárframlög til túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa. Fjárframlögin verða hækkuð um 2 milljónir það sem eftir lifir þessa árs og í fjárlögum næsta árs hækka þau úr 4 milljónum króna í 10 milljónir. Eftir það verður gert ráð fyrir þessum 10 milljónum í þjónustuna árlega, sem er sú upphæð sem forsvarsmenn heyrnarlausra telja nægja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×