Vilja takmarkað botnvörpubann 12. október 2004 00:01
Vernda þarf viðkvæm svæði á hafsbotni til að koma í veg fyrir tjón á lífríki nytjafiska í kringum landið. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Vinstri grænna, sem lögð er fram í þriðja sinn á þingi nú í haust. Í tillögunni segir að stöðugt fjölgi vísbendingum um tjón á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. Tillaga um allsherjarbann við veiðum með botnvörpu er nú til umfjöllunar hjá Sameinuðu þjóðunum og hópur erlendra sjávarlíffræðinga og umhverfisverndarsamtaka hefur krafist þess að samtökin samþykki hana. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að það kunni vel að vera að sum lífríki þoli botnvörpuveiðar en hún segist sannfærð um að þær verði að banna mjög víða. Hún segir handfæraveiðar mun umhverfisvænni og því eigi að auka vægi þeirra um öll heimshöfin. Hún vill þó ekki taka undir tillögur um allsherjarbotnvörpubann. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir löngu vitað að botnvarpa breyti sjávarbotninum og hann telur hafa skort á skipulegar rannsóknir á þessu. "Menn eru að stunda rannsóknir löngu eftir að búið er að slétta út kóralrifin." Hann segir kóralinn svo hægvaxta að það muni taka hann mörg hundruð ár að vaxa þar sem hann hefur verið brotinn niður á tíu til tuttugu árum. Guðjón segist samt ekki styðja hugmyndir um allsherjarbann eins og er til umfjöllunar hjá Sameinuðu þjóðunum. "Það er hins vegar mikilvægt að rannsaka þetta svo við vitum hvaða svæði ber að friða."
Fréttir Innlent Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Steini frá Straumnesi látinn Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Fleiri fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Sjá meira