Kennarar út fyrir sitt svið 12. október 2004 00:01
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að forystumenn kennara skipti sér af starfsemi utan verkfallsins í þeim tilgangi að valda sem mestum óþægindum og formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að átök eigi eftir að verða á bryggjunni vegna útgerðar Sólbaks. Það var Frjálshyggjufélagið sem stóð fyrir fundi um verkfallsvopnið í dag. Farið var yfir sögu þess, kosti og galla. Framkvæmdastjóri vinnuveitenda tók yfirstandandi verkfall grunnskólakennara sem dæmi í máli sínu og ekki annað að heyra en að hann teldi forystumenn þeirra misbeita þessu vopni. Ari Edwald, framkvæmdastjóri samtaka iðnaðarins segir að sér hafi þótt bera á því að forystumenn kennara vildu skipta sér af hlutum sem væru þeim óviðkomandi. Réttlætingin væri sú að annars yrðu ekki nógu margir fyrir óþægindum, en þessi afstaða ætti sér ekki neina stoð í verkfallsréttinum. Verið væri að rugla saman verkfallsrétti og hreinum hnefarétti. Guðmundur Guðmundsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, minnti á að án verkfallsréttarins væri vonlítið fyrir launafólk að sækja hækkanir, því ekki kæmu þær óumbeðnar frá vinnuveitendum. Hann, eins og forsvarsmaður vinnuveitenda, tók yfirstandandi kjaradeilu einnig sem dæmi, deilu sjómannasamtakanna og Brims, útgerðarfélags Sólbaks og sagðist ekki sjá fyrir endann á henni. Guðmundur segir að slagsmál á kajanum hjá Brimi muni sjást bráðlega. Hann telur sjómenn eiga margt vantalað við forsvarsmenn Sólbaks, en sá samningur sem þeir gerðu hafi orðið til þess að sjómenn njóti ekki sömu lífeyrisréttinda og aðrir landsmenn. Gunnlaugur Jónsson, formaður Frjálshyggjufélagsins, benti á að það hefði komið fram hjá framangreindum að það skipti máli hvort verið væri að semja við hið opinbera eða einkaaðila, því hjá hinum opinbera væri enginn hvati til að semja. Lausn í kennaradeilunni gæti verið að einkavæða skóla og koma þannig inn hvata hjá þeim að fjölga nemendum og tryggja sér góða kennara. Og hann spáir því að verkfallsvopnið eigi eftir að snúast í höndum kennara. Gunnlaugur segir að þegar nær dragi jólum verði þrýstingurinn helst á kennara sjálfa. Kennarar setji sjálfa sig í gíslingu þegar fram í sækir. Þeir beini í raun byssu að eigin höfði og hljóti að vilja sjá einhverja aðra leið farna.
Fréttir Innlent Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Fleiri fréttir Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Sjá meira