Innlent

Össur ánægður með breytingu

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar segist fagna því að menntamálaráðherra hafi séð að sér varðandi fjölda fulltrúa í fjölmiðlanefnd. Hún hafi farið afar ógætilega af stað í málinu, en samstillt viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafi orðið til þess að hún hafi séð að sér. Tillaga menntamálaráðherra um að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd úr fimm í sjö var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Mikil óánægja var með það að stjórnarandstöðuflokkarnir þrír ættu að deila tveim sætum í nefndinni, en því hefur nú verið breytt, svo að Frjálslyndi Flokkurinn mun væntanlega fá sinn fulltrúa í nefndinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×