Innlent

Á slysadeild eftir fall

Karlmaður var fluttur á slysadeild um klukkan hálf tvö í dag, eftir að hafa fallið niður af tveggja metra háum vinnupalli í Árbænum. Maðurinn var að rétta verkfæri niður af pallinum, þegar pallurinn, sem var á hjólum fór af stað, með þeim afleiðingum að hann féll af honum og lenti á bakinu. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang og var maðurinn þegar fluttur á slysadeild, þar sem hann liggur enn. Meiðsl hans eru þó ekki talin mjög alvarleg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×