Innlent

Auðkífingur veiðir lunda

Dularfullur rússneskur auðkýfingur, sem hér er á ferð, sparaði sér klifrið upp í Bjarnarey, þegar hann hélt þangað til lundaveiða í fyrradag, og lét þyrlu flytja sig og fylgdarlið sitt út í eyna. Þar náði hann að veiða nokkra lunda í soðið áður en þyrlan sótti þá aftur, og lenti við Höfðaból í Eyjum. Þar var lundinn matreiddur og snæddur að hætti Eyjamanna. Heimamenn telja að það hafi verið dýrasta lundaveisla sögunnar. Síðan var gist í Höfðabóli, en Árni Johnsen, húsbóndi þar, vildi ekkert tjá sig um rússann eða ferðir hans, þegar fréttastofan leitaði eftir því. Rússinn og hans menn eru enn á ferðinni og nú í leiðangri á ofurjeppum uppi á hálendi, eftir því sem Fréttastofan kemst næst. Ætlunin er að fara annað hvort í flúðasiglingar eða upp á jökul, en fyrirtækið sem sér um ferðir hans á fastalandinu, er líka þögult sem gröfin um rússann, nema hvað hann er viðskiptajöfur og víða þekktur sem slíkur. Á Reykjavíkurflugvelli bíður hans svo Gulfstream einkaþota af stærstu gerð, með flugmenn í viðbragðsstöðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×