Innlent

Gjaldþrot ef UMFÍ greiðir ekki

Ríkarður Másson sýslumaður á Sauðárkróki, segir sýslumannsembætti hans verða galdþrota greiði Landsmótsnefnd UMFÍ ekki 2,4 milljóna króna kostnað við aukna löggæslu á tveimur mótum félagsins. "Ég er aðeins að hugsa um þetta embætti og við verðum einhvern veginn að fá þennan kostnað greiddan. Mér er alveg sama hvaðan gott kemur," segir Ríkarður. Ekki hafi verið leitað til dómsmálaráðuneytis. "Þetta er eina leiðin sem ég hef." Búist sé við þúsundum á svæðið. "Embættið hefur ekki fé til þess að taka að sér svona veigamiklar vaktir eins og er í sambandi við þetta og þá finnst mér eðlilegast að þeir sem standa að þessu greiði kostnaðinn," segir Ríkarður. Aðspurður hvað gerist greiði landsmótsnefnd ekki kostnaðinn segir Ríkarður. "Þá er embættið farið á hausinn, það er svo einfalt." Ríkarður segir ekki ljóst til hvaða leiða verði þá gripið. Jón Þór Ólason er lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu. "Þetta liggur í ákvörðunarvaldi hvers sýslumanns fyrir sig að ákveða löggæslukostnaðinn og hvaða viðbúnaður skuli vera vegna einstakra móta eða hátíða. Dómsmálaráðuneytið hefur engin afskipti af einstökum löggæslukostnaði." Landsmótsnefnd vonast eftir farsælum endi á fundi dómsmálaráðuneytis 12. júlí, degi eftir mót.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×