Innlent

Umferðaröryggi fyrir ferðamenn

Gefinn hefur verið út bæklingur fyrir erlenda ferðamenn um umferðaröryggi. Að útgáfunni standa Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa, Umhverfisstofnun og Vegagerðin, en hingað til hafa upplýsingar um akstur á Íslandi hafa ekki verið til nægilegar aðgengilegar fyrir ferðamenn. Árlega slasast töluverður fjöldi erlenda ferðamanna í bílslysum hérlendis og er viðbúið að nokkrir erlendir ferðamenn látist í bílslysum nú í sumar. Breyting hefur orðið á ferðamynstri erlendra ferðamanna á síðustu árum og hefur ferðamönnum fjölgað sem taka bílaleigubíla og keyra um landið á eigin vegum. Sem dæmi um sérstöðu íslenska vegakerfisins er þar sem malbik endar og malvegur tekur við en fjölmörg slys og óhöpp verða á hverju sumri við þær aðstæður, en flestir erlendir ferðamenn eiga ekki að venjast þeim frá heimalöndum sínum. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landbjargar fara í fjölmörg útköll á sumrin upp á hálendið til að losa ferðamenn úr ám og vöðum þar sem þeir hafa fest bíla sína og gert sér ekki grein fyrir akstursaðstæðum áður en þeir keyrðu út í. Í bæklingnum er að finna alhliða upplýsingar fyrir ferðamenn sem þeir geta notað til að auka öryggi sitt á ferð um landið. Bæklingurinn er gefin út á þremur tungumálum, ensku, þýsku og frönsku. Því til viðbótar er bæklingurinn aðgengilegur Netinu hjá þeim aðilum sem standa að útgáfunni á ítölsku, norsku og spænsku ásamt ofangreindum tungumálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×