Enn deilt um Austurbæjarbíó 5. júlí 2004 00:01
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi og borgarráðsmaður Sjálfstæðisflokks, segir ágreining innan Reykjavíkurlistans um hvort rífa eigi Austurbæjarbíó. Sjálfstæðisflokkurinn hafi ákveðið að styðja ekki niðurrifið. Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segir enga opinbera ákvörðun hafa verið tekna um að rífa húsið. Það sé misskilningur. "Það er verið að vinna í skipulagi svæðisins og þegar þeirri vinnu lýkur munu menn taka ákvörðun um það hvort að húsið fær að standa eða ekki." Alfreð segir að Reykjavíkurborg muni ekki kaupa húsið til þess að hafa einhverja starfsemi í því. "Það er eitt sem er alveg öruggt. En hvort að það endar þá sem eitthvert draugahús, það verður bara að koma í ljós," segir Alfreð. Vilhjálmur segir að innbyrðis ágreiningur innan Reykjavíkurlistans hafi gert það að verkum að málið hafi þvælst í kerfinu í hátt á annað ár. "Mér er kunnugt um að þetta strandi á Vinstri grænum í meirihlutanum." Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans í Vinstri hreyfingunni grænu framboði, segir málið í eðlilegum farvegi. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra, bar upp þá tillögu á síðasta borgarráðsfundi að Austurbæjarbíó fengi að standa. Það leiddi til harðra ummæla Alfreðs í hans garð. "Það kann hugsanlega að vera skýringin á því hve Alfreð brást illa við á borgarráðsfundi að hann finni að samstaðan á bak við hann í þessu máli sé að gliðna." Ólafur bendir þó á að fulltrúar meirihlutans þurfi að skipta um skoðun til að bíóið fái að standa en ennþá hefur enginn borgarfulltrúi R-listans lýst sig andvígan niðurrifi Austurbæjarbíós. "Nú er mál til komið að borgarbúum og ekki síður þessum byggingaverktökum sem vilja reisa fjölbýlishús þar sem bíóið stendur nú sé gerð grein fyrir niðurstöðunni og borgin axli sína ábyrgð í þessu máli." Alfreð segir niðurstöðu liggja fyrir á næstu vikum.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira