Hefði getað farið illa 5. júlí 2004 00:01
Fjórir voru fluttir á Slysadeild Landsspítalans eftir að hafa hnigið í öngvit af súrefnisskorti á tónleikum Metallicu í Egilshöll í gærkvöldi og björgunarsveitarmenn þurftu að bjarga tugum manna út úr húsinu, sem komnir voru í andnauð. Eftir að hljómsveitin Mínus hafði hitað upp varð hátt í klukkustundar hlé þar til Metallica byrjaði að spila og var mistri dælt inn í húsrýmið á meðan til að skapa ákveðna stemningu í húsinu, og að sögn fólks, sem var á staðnum, virtist hafa verið drepið á allri loftræstingu til að viðhalda mistrinu. Þegar þarna var komið sögu var svitinn farinn að boga af öllum viðstöddum og fólk fór að eiga erfitt með andardrátt. Greip lögreglan þá til þess ráðs að láta opna allar útgöngudyr á húsinu og setja loftræstinguna á fullt og varð ástandið skaplegt upp úr því. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar hefði getað farið illa ef skelfing hefði gripið um sig meðal gesta og eins ef ölvun hefði verið þar almenn, sem ekki var. Að sögn Geirs Jóns virðist höllin henta vel fyrir stórviðburði, en vegna ástandsins í gær verður nú farið yfir málin með húseiganda og tónleikahaldaranum. Þar fyrir utan var góður rómur gjör að leik og söng bandarísku sveitarinnar. Um það bil átján þúsund manns, eða um sex prósent þjóðarinnar, sóttu tónleikana, sem stóðu fram yfir miðnætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira