Innlent

Geðveikt í Egilshöllinni

Átján þúsund manns gafst kostur á að kaupa sér miða á tónleika Metallicu sem haldnir voru í Egilshöllinni í gær. Þrátt fyrir að nokkrir miðar voru óseldir, voru þetta stærstu innitónleikar sem nokkurn tímann hafa verið haldnir á Íslandi. Greinilegt var að tónleikagestir þekktu hljómsveitina vel og var stemningin eftir því. Þrátt fyrir aðskilnað í svæði A og B var um nokkurn troðning að ræða, sérstaklega þegar nær dró hljómsveitinni. Það var mikið um sveitta og þreytta en mjög káta gesti að tónleikunum loknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×