Lík Sri Rhamawati fundið 3. ágúst 2004 00:01
Lík Sri Rahmawati fannst í djúpri og þröngri hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í dag. Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati, vísaði lögreglu á réttan stað eftir að honum var sagt að rannsókn lögreglu sýndi að fyrri staðsetning sem hann gaf upp stæðist ekki. Lögreglan hefur rannsakað hvarf Sri Rhamawati, 33 ára gamallar konu sem síðast var vitað um að morgni sunnudagsins 4. júlí sl. Lögreglu var tilkynnt um hvarf hennar að kvöldi mánudagsins 5.júlí og rannsókn hófst strax að morgni þriðjudagsins 6. júlí. Fljótlega vöknuðu grunsemdir um refsivert athæfi og að ekki væru eðlilegar skýringar á hvarfi hennar. Eftir ítarlega vettvangsrannsókn strax um morguninn, í íbúð þar sem síðast var vitað um hana, var barnsfaðir hennar og fyrrum sambýlismaður handtekinn. Daginn eftir var hann leiddur fyrir dómara og gerð krafa um gæsluvarðhald sem dómari féllst á. Það var síðan framlengt að kröfu lögreglu til 11. ágúst n.k. Í tilkynningu lögreglunnar segir að þann 27. júlí hafi hinn handtekni bent á staðinn, sem hann sagðist hafa komið líkinu af Sri Rhamawati fyrir á. Sagðist hann hafa kastað því fram af klettum á Presthúsatöngum á sunnanverðu Kjalarnesi.. Þann 28. júlí játaði hann fyrir lögreglu að hafa orðið Sri Rhamawati að bana með barefli í íbúð sinni að morgni sunnudagsins 4. júlí. Þá segir í tilkynningu lögreglunnar að frekari rannsóknir á vettvangi á Kjalarnesi hafi gert frásögn hins handtekna ótrúverðuga. Í dag féllst hann svo á að vísa lögreglunni á lík Sri Rhamawati þar sem hann hafði komið því fyrir í hraunsprungu utan við Hafnarfjörð og urðað yfir. Við leit þar fannst líkið á tilgreindum stað. Lögreglan í Reykjavík þakkar öllum, sem veitt hafa aðstoð við rannsóknina, þolinmæðina og þeirra góða liðsinni. Rannsókn málsins heldur áfram.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira