Vonbrigði með utanvegaakstur 23. júlí 2004 00:01
Í sumar hefur orðið nokkuð vart við utanvegaakstur á hálendi landsins og hafa forsvarsmenn í Ferðaklúbbnum 4x4 sent frá tilkynningu af því tilefni þar sem staða mála er hörmuð. Klúbburinn segist hafa reynt eftir mætti á tuttugu ára starfstíma sínum að vinna gegn utanvegaakstri og náttúruskemmdum af völdum aksturs í óspilltri náttúru landsins. Það séu því veruleg vonbrigði fyrir félaga klúbbsins að heyra að utanvegaakstur sé nú með mesta móti. Ljóst sé að bregðast þarf við þessari þróun og mikilvægt að frjáls félagasamtök taki höndum saman í því skyni að ná til þeirra sem enn hafa ekki öðlast skilning á þeim skaða sem þetta veldur. Samkvæmt náttúruverndarlögum er allur akstur utan vega bannaður, að undanskildum akstri á snævi þakinni og frosinni jörð. Síðastliðinn vetur var óvenju snjóléttur á hálendinu og allar aðstæður því frábrugðnar því sem verið hefur. Í tilkynningu ferðaklúbbsins segir að ferðamenn á jeppum verða að taka tillit til þess og aðlaga ferðavenjur sínar að þessum aðstæðum. Akstri þurfi alltaf að haga þannig að ekki sé hætta á að för myndist í jarðveginn eða skemmdir verði á náttúrunni. Ferðaklúbburinn 4x4 fordæmir allan óleyfilegan utanvegaakstur og skorar á alla þá sem ferðast á vélknúnum farartækjum um náttúru landsins að huga vel að þessum málum og leggja sig fram um að haga akstri þannig að aldrei skapist hætta á náttúruskemmdum.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira