Innlent

Fjórir árekstrar á tæpri klst.

Tveir bílar lentu í árekstri á gatnamótum Höfðabakka og Stórhöfða nú á fimmta tímanum. Að minnsta kosti einn slasaðist. Höfðabakki var lokaður um tíma en hefur verið opnaður aftur. Umferð er farinn að þyngjast en frá klukkan fjögur hefur verið tilkynnt um þrjá aðra árekstra í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík. Einn varð á gatnamótum Bústaðavegar og Tunguvegar og tveir árekstar urðu á Vesturlandsvegi, annars vegar við bensínstöð Shell og hins vegar í brekkunni við Hvalfjarðargöng. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um þessi óhöpp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×