Verkfall háseta yfirvofandi 23. júlí 2004 00:01
Verkfall hjá hásetum á hafrannsóknarskipum er yfirvofandi á mánudag, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Deilt er um yfirvofandi skerðingu sjómannaafsláttar. Verkfallið kemur til vegna frumvarps Geirs H. Haarde fjármálaráðherra um skerðingu sjómannaafsláttar. Forsvarsmenn hásetanna vilja semja beint við ráðherra um að kjarasamningar þeirra verði lausir nái frumvarpið fram að ganga. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir óskiljanlegt að málið sé í þessum farvegi. Hann segir fjármálaráðherra hafa gert sér grein fyrir því fyrir síðustu áramót að frumvarp lægi fyrir um að afnema sjómannaafsláttinn. Sævar segist þá hafa sagt honum að ef ráðherrann ætlaði Sjómannasambandinu að semja við LÍÚ fyrir fiskimenn þá væru líka aðrir sem kæmu að þeim málum, þ.á m. sjómenn á hafrannsóknarskipunum. Honum finnst að fjármálaráðherra eigi nú að setjast niður með hásetunum og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hásetunum hefur verið boðið að bóka sérstaklega að ef um það verði samið í kjarasamningum sjómanna á almennum markaði, að samningar verði uppsegjanlegir ef sjómannaafslátturinn verði afnuminn, skuli það sama ganga yfir háseta á hafrannsóknarskipum. Þessu hafa þeir hafnað. Samningafundur í deilunni verður á mánudag klukkan hálf ellefu. Verkfallið hefst klukkan hálf fjögur sama dag ef ekki semst. Sævar segir að skipin séu í rannsóknarferðum og verkfallið trufli eða setji áætlanir úr skorðum. Hann vonar að fjármálaráðherra hafi burði til að klára málið áður en til verkfallsins kemur.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira