Starfsfólk fæst ekki 26. júlí 2004 00:01
Mikið álag er á starfsfólki slysa- og bráðadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss og fólk getur þurft að bíða klukkustundum saman eftir þjónustu. Starfandi lækningaforstjóri segir ástæðuna ekki vera fjársvelti heldur fáist fólk einfaldlega ekki til starfa. Ekki var unnt nema í einstökum tilfellum að ráða sumarafleysingafólk á deildina og dæmi eru um að meira en helmingur læknanna séu í fríi á sama tíma. Vilhelmína Haraldsdóttir, starfandi lækningaforstjóri LSH, segir oft erfitt að finna afleysingafólk í störf sérfræðilækna á bráðadeild því þau séu erfið og sérhæfð. Yfirlæknir á bráðamóttöku segir ástandið slíkt að starfsfólk fari örþreytt heim og sé ekki úthvílt þegar það mæti aftur til starfa. Starfandi lækningaforstjóri segir hættuástand ekki hafa skapast, þótt álag sé mikið. Þess sé gætt að mönnun fari ekki niður fyrir öryggismörk og mikið slösuðu fólki sé veitt aðhlynning um leið og það kemur á deildina. Hins vegar komi alltaf töluvert af fólki á slysadeildina sem er tiltölulega lítið þjáð og gæti leitað sér aðstoðar annars staðar og segir Vilhelmína að biðin komi langmest niður á því fólki eins og eðlilegt er. Ekki er það svo að allir slasi sig á opnunartíma Heilsugæslustöðva og dæmi eru um að biðin eftir þjónustu læknis á slysadeildinni vari í fjórar klukkustundir. Starfandi lækningaforstjóri segist vona að betur gangi að manna deildina fyrir sumarleyfi á næsta ári, án þess þó að hafa svör við því hvernig lokka eigi lækna til starfa.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira