ÁTVR brýtur áfengislög 26. júlí 2004 00:01
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins brýtur gegn áfengislögum með því að auglýsa áfengi. Forstjóri ÁTVR segir stofnunina ekki ganga eins langt og heildsalar en tekur undir með þeim að skýrari reglur vanti um áfengisauglýsingar hér á landi. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld gagnrýndi Lýðheilsustofnun vínauglýsingar sem birtust í Morgunblaðinu. Lögin skilgreina auglýsingu sem „...hvers konar tilkynningar þar sem sýndar séu í máli eða myndum áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyslu, svo sem áfengisvöruheiti eða auðkenni...“ Þó má auglýsa vörumerki sé orðið léttöl haft með og í sumum auglýsingum sést orðið jafnvel í aðeins tæplega tvær sekúndur. Hallgrímur Geirsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, segir ásókn í að birta auglýsingar í fylgiriti um mat og vín. Hann segir misskilning hafa orðið hjá staðgengli ábyrgðarmannsins, sem sé í sumarfríi, varðandi Baileys-auglýsingu sem er beinskeyttari en áður hefur þekkst. En burtséð frá auglýsingum má spyrja hvort keypt umfjöllun sé ekki jafn ólögleg. Starfsmenn áfengisheildsala sem Stöð 2 ræddi við í dag sögðu það ekkert feimnismál að Mogginn og Fréttablaðið seldu þeim pláss fyrir umfjöllun. Sama máli gegndi um vínkynningu í Íslandi í bítið á Stöð 2. Talsmaður Austurbakka segir: „Við borgum fyrir að okkar vín sé notað, svo er það stöðvarinnar að vinna efnið.“ Einnig vekur athygli að sjálft ríkið auglýsi áfengi. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að ekki séu auglýstar einstakar tegundir heldur sé vínbúðin kynnt, landsvæðin þaðan sem vínin koma og bent sé á með hvernig mat þau henti. Höskuldur segir því að aðrir gangi mun lengra en ÁTVR en kveðst skilja óskaplega vel að kaupmenn reyni að selja sína vöru. Það sé lögmál kaupmennskunnar en skerpi þurfi á hvað megi og hvað megi ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira